Prófíll

  • Nafn: Hanna Rós Jónasdóttir
  • Stađur: Akureyri
  • Símanúmer: 8494319
  • Atvinna: Nemi í fullu starfi
  • Hjúskaparstađa: Á Lausu

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Afmćlishelgin 29. - 30 nóvember

01. desember 2008 klukkan 08:31
 

Á laugardaginn fórum við RósandBerg til Marseille. Marseille er æðisleg borg. Ég varð ástfangin í annað sinn af Frakklandi. Lyktin, húsin og að komast í smá menningu var frábært. Við röltum um, fórum á jólamarkað, höfnina og í gamla bæinn. Lentum svo á málverkasýningu eftir Van Gogh og Montecelli. Ótrúlegt að sjá verk eftir þessa meistara með berum augum.

En engin er borgarferð án verslunar og má segja við höfum gert rosa góð kaup. Komum sko út í stórum plús eftir þessa ferð :Þ

Sunnudagsmorguninn var mjög viðburðarríkur. Ég vaknaði við engar smá þrumur og eftir fylgdi haglél. Náði fínu myndbandi af haglélunum. Það er sjaldséð sjón hér í Frakklandi að það snjói og hvað þá með haglélum. Ekki skrítið að veðrið hafi ákveðið að gera e-ð merkilegt á svo merkilegum degi.Birna kom svo askvaðandi heim úr bakaríinu með rúnstykki og alveg heljarins köku með kertumJ Enda var sparifatadagur og kökufaffi. Ég blés á kertin og óskaði mér - fékk leiðbeningar um óskar mér einhvers raunsæs. Halldór gaf mér svo evrópufánann. Ég er einmitt búin að vera að leita að einum slíkum síðan ég kom hingað og varð alveg himinlifandi. Verð með áróður þegar ég kem heim. Kannski í flaggi honum á Alþingishúsið í staðin fyrir bónusfánann. Gæti verið að það myndi vekja meiri athygli.

Af tilefni sparifatadagsins fórum við upp í Hyére um kvöldið. Fórum í spilavítið og borðuðum þriggja rétta máltíð og skoluðum matnum niður með Bourdoux. Við erum orðin svo snobbuð fyrir rauðvínum að pabbi á eftir að roðna við kunnáttu minni um jólin. En dagurinn í gær var algjört æði og takk kærlega fyrir mig Bjardýr og Berg. Þakka líka fyrir öll símtölin og kveðjurnar J

Svo eru jólin alveg að koma. Jólasmákökur úr IKEA, jólabrjóstsykur, jóladagatal og jólatónlist er á boðstólnum hér á hverjum degi. Það er sko engin kreppa í Frakklandi. Evran ekki nema litlar 190kr og verður svo fljótandi í næstu viku, spurning hvort hún rjúki upp í 300kr.

Annars líða dagarnir rosalega hratt. Við erum í tveggja vikna stórum kúrs núna sem verður nóg að gera í. Svo erum við svona að farin að spá í heimferðinni enda förum 18. Desember. Georg og Arnaud koma svo 14 desember. Það verður mjög gaman að fá að sjá þá og sýna þeim höllina sem við búum í ;)

Annars segi ég bara gleðilega aðventu og gangi ykkur vel í lífinu J   

Salut Hanna Rós
Hanna Rós Jónasdóttir
2 athugasemdir

Miđvikudagurinn 26.11

26. nóvember 2008 klukkan 12:16
 

Undafarna daga hefur blásið köldu hérna í Frakklandi. Svokölluðu Mistral vindar hafa látið finna til sín. Colin Wright, kennarinn okkar í Strategic Marketing sagði okkur að þessum vindum fylgdi hærri sjálfsvígstíðni. Merkilegt! Hann er uppáhaldskennarinn okkar hér. Kyssti okkur Birnu í síðasta tímanum okkar, þó svo það sé bannað hér í Frakklandi enda erum við líka uppáhaldin hans J

Jólin eru greinilega að nálgast hér í Frakklandi. Hér má sjá blikkandi pálmatré á hverju götuhorni. Okkur finnst það nú ekki alveg það jólalegasta sem við getum fundið hér. Jólin eru líka að koma heima hjá okkur. Tilhlökkun til heimferðar er að vaxa jafn og þétt enda 21 dagar. Svo í næstu viku byrja jólamarkaðir og hlakka ég lang mest til þess. Elska jólamarkaði eftir ferð okkar Rögnu til Þýskalands þarna um árið.

Í síðust viku fórum við á rauðvínsgleði í Hyére með Isabelle, frönsku kennaranum okkar. Hún er frábær. Hún er um sextug, pínu litíl og algjör skellibjalla. Fyrir nokkrum árum seldi hún allt sitt og ferðaðist um heiminn í ár. Ótrúlega svöl. Allavega, þá var verið að fagna rauðvíni. Þetta rauðvína var það nýjasta sem til var á markaðnum því það var ný búið að gefa út leyfi að það mætti drekka það. Það var alveg ótrúlega sterkt. Áræðinlega um svon 15%, líkt og flest Crau vínin eru en það eru vínin hér úr hérðainu (talandi um að vera orðin fróð um rauðvínJ) en það var alveg ótrúlega gaman. Við Birna fengum alveg ótrúlega gott tilboð frá sama manninum á milli rauðvínsflaska. Hann var svona um 40, talaði einhverja smá ensku og vinir hans töngluðust standslaust á „He was a famous rubby player, back in the days" nema hvað að kallinn toppaði þetta og spurði okkur „Do you want to be the mother of my children"  það er ekkert verið að skafa af þessu hér í Frakklandi.

En jæja nóg í bili. Hanna Rós

Hanna Rós Jónasdóttir
3 athugasemdir

Ţriđjudagurinn 18. nóvember

18. nóvember 2008 klukkan 14:49
Í dag eru 30 dagar þangað til ég yfirgef 9 avenue des Sírénes, hér í Hýere. Lífið hérna í Frakklandi hefur verið ótrúlega notalegt en mikið verður það gott að koma heim og hitta alla aftur.
Ég þurfti að hætta við Parísarferðina því ég var aðeins búin að misreikna peningamálin hjá mér. Ég hélt að ég ætti eftir að fá meiri erasmusstyrk en svo er ekki og svo er Krónan alltaf á niðurleið. Enda á ég eftir að fara til Parísar í framtíðinnar, það er ekki það  Ég fór í staðin í dagsferð til Cannes. Cannes er ótrúlega fallegur bær með flottustu hótelunum, flottustu bílunum og flottustu búðunum. Ég var festist næstum því með nefið á þessum búðum því ég kunni ekki við að fara inn enda hefður öryggisverðirni ekki veri lengi að henda okkur út.
Um næstu helgi er árshátíðin hjá skólanum okkar. Við erum að spá í að skella okkur. Útlitið á okkur hérna hefur reyndar dalað smávegis. Ég þori ekki í klippingu og litun hérna. Ég myndi enda með bleikt hár því ég er ekkert ótrúlega sleip í hár og klipp orðaforðanum í frönskunni.
Við förum svo að gera það síðasta sem við ætlum að gera hérna áður en við komum heim. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram. Mér finnst alveg ótrúlega langt síðan við vorum send á formúlu eitt mótel fyrstu nóttina okkur hérna úti. Íbúðarleitin hafði e-ð gengið illa um daginn og við gjörsamlega búin á því. Eina ráðið sem fundum til þess að hressa okkur við var 5 litra kútur af rauðvíni og snakk!
Það er hefð hérna á frönsku börum að ef þú drekkur meir en þrjá bjóra þá færðu þann 4 ókeypis sem er gott fyrir bjórþyrsta Íslendinga  Við röltum stundum á hverfisbarinn og fáum okkur nokkra bjóra en yfirleitt eftir þann 4 erum við orðin alveg ótrúlega hress og endar kvöldið þá yfirleitt öðruvísi en búist var við. Síðasta laugardagskvöld endaði einmitt í bát/snekkju í Le port sem er næsti bær við okkar bæ með alveg ótrúlega hressum strákum. Við vorum næstum því búin að taka þátt í siglingakeppni sem haldin var á sunnudaginn en vegna lélegrar heilsu daginn eftir komumst við ekki ;) hehehe
Skólinn er alltaf jafn ruglingslegur. Nú er búið að bætast við okkur erasmusverkefni. Þetta verkefni endar samt ekki fyrr en í febrúar með ráðstefnu sem haldin verður í gengum War and Worldcraft eða einhvern svoleiðis leik. Ég þarf sem sagt að fara að setja mig inní einhverja svona leiki til þess að geta flutt erindi um verkefnið okkar. Við ætlum númað hafa þetta einfalt og gera heimasíðu á íslensku um skólann og mikilvæg atriði sem gott er að vita þegar fólk kemur hingað í skiptinám  Ella Magga þetta er bara hugsað fyrir þig 
Ég kannski reyni að setja inn annað blogg áður en ég kem heim - hver veit.
Svo er bannað að gleyma eftir afmælinu mínu sem er 30. Nóvember!
Kv. Hanna Rós
Hanna Rós Jónasdóttir
4 athugasemdir

24. Október

24. október 2008 klukkan 11:07
 

Ótrúlega langt síðan ég bloggaði síðast. Október hefur verið rosalega viðburðaríkur mánuðir. Kreppan kom - gengið flaug upp - allt fór á hausinn og við vorum „peningalaus" í viku.

Hjónin sem við legjum hjá hafa alveg ótrúlega miklar áhyggjur af okkur. Koma reglulega og athuga hvort okkur sé nokkuð kalt, hvernig fjölskyldur okkur hafa það og ekki síst hvernig staðan á Íslandi sé. Við svörum náttúrulega að Ísland sé best í heimi.

Á miðvikudaginn fórum við með Mastersnemum og Erasmusnemum til St. Tropez. St. Tropez er voðalega lítill bær. Það sem hann hefur fram yfir Hýere er að þar er ríka og fræga fólkið. Snekkjurnar við höfnina þar eru ekki síðri en þær í Nice og sá ég nokkrar sem myndu fara mér alveg agalega vel. Ég og Halldór fórum svo með Jean Claude ( hann sér um erasmus prógramið og er okkar súperman hérna í Frakklandi) og fengum okkur bjór. Lítill Heineken kostaði ekki nema litlar 8 evrur en vegna þess á hversu góðum styrkjum við erum á, fannst okkur þetta nú lítið mál.

Við erum loksins komin með „stundaskrá" eða sýnishorn af henni. Fáum semsagt okkar 30 esct einingar, eftir ekkert lítið vesen. Skólinn leysti þetta þannig að við tökum 2 áfanga með Masternum og svo bjó Jean-Claud til áfanga um Web publising.Við erum rosalega fegin samt hversu lítið við þurfum að vera í skólanum enda erum við alltaf að gera eitthvað skemmtilegtJ

Í gær pantaði ég svo tvær kampavínsflöskur frá Champane héraðinu hér í Frakklandi. Frönsku kennarinn minn á einhvern vin sem er að framleiða kampavínið og fáum við þetta beint frá honum. Ætla mér svo að gerast lögbrjótur og flytja þetta inn til Íslands J Held að þetta eigi eftir að gera lukku um áramótin heima hjá mér J

Um helgina munu svo allir Erasmus nemendurnir koma heim til okkar í grill og sólbað. Það á víst að vera heiðskírt og logn. Alveg perfect sólbaðsveður. Þið hugsið bara til mín úr snjónum heimaJ

Svo eru ferðalög framundan. París um næstu helgi, Marseille og Cannes helgina þar á eftir, Lyon að heimsækja Alex og Montparlior. Þetta verður algjör snilld.

Salut Hanna Rós! 

Hanna Rós Jónasdóttir
8 athugasemdir

Nice 4-5 október :)

07. október 2008 klukkan 14:07

Ferðalagið til Nice hóft klukkan 7 á laugardagsmorgun. Við Halldór lögðum land undir fót og ferðuðumst til Nice. Umhverfið á leiðinni var rosalega fallegt, fórum við í gegnum Cannes og fleiri svipaða staði.

Nice er rosalega falleg og fengum við frábært vedur. Við gengum um og skoðuðum miðbæinn, gamla bæinn, ströndina, höfnina, garðana og torgin. Snekkjurnar sem liggja við landfestar eru ekkert af verri kanntinum og stefni ég á að eignast eina slíka. Nöfnin á þeim eru eins og nöfnin á íslensku húsbílunum, væmin -  Inevidable og Destyne sáum við á nokkrum.

Þetta myndband þótti alveg ákaflega fyndið, tek skýrt fram að ég var að taka fyrta sopan á rauðvínsflöskuna þegar þetta myndband var tekið! hehe

 Við vættum kverkarnar á útsýnisstað á Nice þar sem sést vel yfir borgina. Eftir eina rauðvín eða svo skrifuðum við niður flöskuskeyti sem hljóðar svo:

Written in Nice, 2008

To whom it may concern

If you are a owner of a yacht please be so kind and invite us to a yachtparty. We are two icelandic exchange students who have been living on the Cote d‘Azur for a month now and haven‘t yet been invited to a single yaght party. This is a huge disappointment, as you can imagine. We are a very decent company but also well behaved. You can send the invitations to the following emails:

email@email.com email2@email.com
Best Regards

Halldór henti því svo í sjóinn og vonum við eftir svari fljótt J Síðan skelltum við okkur á djammið. Fundum engin almennilega Euro-popp diskótek en heimsóttum skemmtilegar krár og dönsuðum af íslenskra manna síð.

Nice er nice – mæli með henni

Hanna Rós Jónasdóttir
3 athugasemdir

Hinn venjulegi Frakki..

03. október 2008 klukkan 07:09
 Spurning um að skrifa niður nokkur orð um hinn venjulega Frakka, eða upplifun okkar á honum.

Hinn venjulegi frakki er afskaplega rólegur, of rólegur að okkar mati. Til dæmis eyðum við um 2 klukkustundum í strætó á degi hverjum og þykir ekkert sjálfsaðar hér en að bílstjórinn taki sér smá pásu, spjalli við næst bílstjóra sem stundum leiðir til þess að við missum af næsta strætó. Aftur á móti heilsar maður alltaf bílstjóranum "bonsjour" og kveðjur hann "Au revoir"

Í strætó höfum við lent í kynnum við franksar gelgjur og eru þeir að mínu mati mun verri en þær íslensku. Það er tísku hér að vera með síma sem spilar tónlist og eru þau alltaf með Europoppið á hæstum styrk í strætó. Svo pota þær og benda á mann því við erum náttúrulega vitlausu erasmus stúdentarnir.

Ég hef oft lent í því að fólk komi og reyni að tala við mig. Ég set þá oftast um svipinn - skilekkiveitekki - og segi á minni mjúku frönsku "Parle vou ángle?" en þá fer fólk í baklás, sama á hvaða aldri fólkið er. Til dæmis er nemendum hér í skólanum skipt niður hópa í ensku kúrsunum eftir getu í ensku. Þeir sem eru í hópi A eru víst þrusu góðir og þar í hópi er hann Jerome sem hjálpaði okkur hér á fyrstu dögunum. Hann talar ekki góða ensku þannig ég get rétt ímyndað mér hvernig hópur D er.

Við erum byrjuð í frönsku kúrs 2var í viku hjá æðislegri konu sem heitir Iabelle. Þar sitjum við 20 nemendur og reynjum að babbla einhverja frönsku. Svo höldum við frönsku kvöld heima, þar sem aumingja Halldór reynir að laga framburðinn hjá okkur Birnu. Það er þolinmæðisverk skal ég segja ykkur ;) 

Við vorum búin að gera alveg rosalega áætlanir um þessa helgi sem allar hafa brugðist. Fyrst ætluðum við að fara á Octoberfest til Munchen og hitta Max en lestarkerfið frá Toulon er furðulegt, tími í dag í skólanum og evran settu strik í reikninginn. Mamma og pabbi Birnu eru svo í París og okkur dauðlangaði þangað en sama sagan þar. Við erum að reyna að skilja þetta kerfi hér. Okkur skilst að við þurfum að panta far með einhverjum mánaðar fyrirfara sem bara getur ekki verið. Þannig við ætlum að fara til Nice á morgun og vera þar þangað til á sunnudag. Hefði gefið nýra til þess að komast til Parísar en við förum þangað seinna. Glatað að vera í Frakklandi í einhverja mánuði og koma til Parísar.

Hinir erasmus stúdentarnir eru rosa fínir. Tveir frá Litháen, nokkrar frá englandi, wirdó frá Írlandi sem talar með hrikalegum hriem, stelpa frá Íran, strumpastelpur frá Belgíu og svo einhverjir sem ég veit ekki alveg hverjir eru.

Annars er fyrsta skólavikan að líða og erum við að mæta í fyrsta alvöru tíma í dag. Það er ekki búið að búa til neitt prógram handa okkur og vitum við ekki neitt! Ótrúlega óþægilegt að vera búin að vera hér í mánuð og vita bara ekki neitt. Þetta á reyndar að skýrast á mánudaginn og krossleggjum við puttana yfir því og lækkun evrunnar. Annars sagði stjórnuspáin mín fyrir október að evran myndi lækka í kringum 20 og ég myndi verða yfir mig ástfangin þann 14 (hún hefur reyndar sagt það marg oft og ekki finn ég fyrir áhrifunum af því ;)) 

Á miðvikudaginn var 1.október. Þá var mánuður síðan ég fór út. Mánuður síðan ég drakk kók síðast, byrjaði í ræktinni og fór á sröndina. Á Íslandi var snjókoma!

Góða helgi og ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera
Knús í glimmer
Hanna Rós
 
Hanna Rós Jónasdóttir
1 athugasemd

28.9.2008

29. september 2008 klukkan 09:13

Bloggletihaugurinn Hanna

Það hefur nú aldeilis mikið gerst síðan síðast og á blogginu hans Halldórs er fín upptalning á þeim hlutum.

Í stuttu máli erum við búin að kynnast mjög mörgu og góðu fólki sem getur talað við okkur á ensku. Hinir skiptinemarnir eru mjóg fínir. Það er ein stelpa frá englandi sem heitir Rachel og rosa fín. Tvær stórsrkítnar stelpur frá Belgíu sem syngja strumpalagið af minnsta tilefni og tveir krakkar frá Litháen.

Við vorum öll sammála um það að kossahefð Frakka er kjánaleg í fyrst en þótt ótrúlegt megi virðast venst hún fljótt ;) Mér finnst ekkert tiltöku mál núna að rjúka á fólk og kyssa það þegar ég sé það. Passið ykkur um jólin þegar ég kem heim, kyssi allt og alla sem á vegi mínum verða!! Verð að segja að það var mjög kjánalegt fyrsta daginn þegar við vorum að sjá allt þetta fólk í fyrsta skiptið að kyssa alla Hæ. Birna og ég vorum alveg að kafna úr hlátri en þorðum ekki annað en að taka þátt í þessu. Allt fyrir hefðirnar.

Á morgun byrjar svo „skólinn“. Við erum ekki komin í neitt prógram og vitum eiginlega ekki neitt enn. Vona að þetta skýrist á morgun. Frönsku kúrsinn byrjar þannig það er allavegana eitthvað hérna að ganga upp J. Frakkarnir eru ótrúlega rólegt fólk.

Það var lokapartý á kynningarvikunni í gær hérnar í Hýere og mættum við auðvitað. Í enda kvöldsins flutti ég svo Totally eclipse of the heart með dívunni sjálfri – allt gert fyrir Ragnheiði mína – við mikinn fögnuð J Birna svitnaði smá yfir flutningi mínum sem átti sér stað í fatahenginu hehe.

Líf okkar byggist mikið á því hvenær strætó kemur og hvenær hann fer. Strætóarnir koma mikið þegar þeim hentar og hætta að ganga klukkan 7 á kvöldin. Leigubílarnir eru mjög dýrir og fáir þannig að krakkar sem eru að fara að djamma eru alltaf með einn driver. Þannig að í gær voru einn af hverjum 5 edrú. Sæi þetta eiga sér stað á Íslandi.

En jæja ætla að skella Friends í – fótaferðatími er klukkan 6 í fyrramáli til þess að ná strætó

Au revior Anna

P.s í Frakklandi heiti ég Anna, Halldór heitir Dorich og Birna heitir Berna
Hanna Rós Jónasdóttir
3 athugasemdir

Franskir kossar og rauđvín

28. september 2008 klukkan 16:33
Hæhæhæ

Ég nenni ekki að blogga í augnablikinu en bendi áhugasömum á halldorberg.bloggar.is
skemmtileg færsla sem lýsir undarfarinni viku :)

Au revoir
Hanna Rós Jónasdóttir
1 athugasemd

18.9

18. september 2008 klukkan 14:52

Sæl allir saman..

Mikið langar mig smá í samfélag sem talar bara smá ensku. Í alvörunni - það er erfitt að fara á Mcdonalds og biðja um Big Mac. Það talar bara enginn ensku eða segjast ekki tala ensku, svo þegar við reynum að tjá okkur á ensku, skilja þau flest allt en vilja ekki tala á móti og þá byrjar oft handagangur í öskjunni og hinir umdeildu en ekki síst góðu leiklistarhæfileikar koma sér þá vel.

Í dag er skýjað en samt 21 stiga hiti. Við tókum daginn snemma og hjóluðum í miðbæinn. Já ég var að kaupa mér rosalega fallegt hjól. Það er með körfu sem passar fullkomlega undir Bagette og rauðvín. Og það er svart og bleikt. en já við tókum svo strætóinn frá miðbænum í skólann. Við þurfum að skipta á leiðinni og vorum við að reyna að finna út hvaða leið væri best að fara og svoleiðis. Ferðin upp í skóla tók 3 klukkutíma því við vorum ekki alveg að skilja kerfið en það er komið núna og mun ganga alveg ljómandi vel í framtíðinni. Vorum svo að koma til baka. Náðum í hjólin okkar og ætluðum að hjóla til baka en neibbbb Hjólinu hans Halldórs var farið. Stolið. 2ja daga gamalt! Setur smá strik í reikninginn hjá okkur því nú verður erfiðar að komast í skólann.

Á mánudaginn eigum við svo að mæta upp í skóla í okkar fínasta pússi. Kjóll og jakkaföt víst. Nú ætla ég að kynna íslenska hönnun fyrir frökkunum og sýna þeim hvernig alvöru íslenskir víkingar líta vel út. Á þriðjudaginn er víst einhverskonar busun. Í fyrra voru krakkarnir látnir gera e-ð mis niðurlægjandi í Toulon og auðvitað tökum við þátt. Á Miðvikudag - föstudags er síðan farið úr bænum á einhverja strönd og slappað af og dansað. Spurning um að kynna þá einnig fyrir ljótudanshæfileikum íslenskra víkinga!

annars var Halldór að setja inn myndband á netið á halldorberg.bloggar.is sem lýsir íbúðinni okkar og næsta nágrenni ágætlega. Bið nánustu fjölskyldu um að fá ekki áfall. Ég hef lækkað skíta stuðullinn talsvert. Það sem má segja um íbúðina er að privaseeið er ekki NEITT, en það er bara gaman :)

Heyrðu svo kann ég ekki að setja inn myndir og facebook virkar ekki þannig þið verðið bara að fylgjast með hjá birnu - birna-dis.blog.is - þar er myndasíðan hennar.

Kveðja Hanna Rós

Hanna Rós Jónasdóttir
4 athugasemdir

15.9.2008

15. september 2008 klukkan 12:31

Málleysinginn Hanna

Ótrúlega skrítið að vera í landi þar sem mjög fáir skilja mann. Ef fólk talar ensku, er enskan hjá mörgum þeirra eins og grunnskóla enska hjá okkur. Við höfum nú þegar dregið fram glósubækur og erum að reyna að læra grunninn þannig að við getum allavega þakkað fyrir okkur á veitingastöðum J

Við erum komin með íbúð. Hún er mjög lítil en einnig alveg hlæjilega ódýr og alveg við ströndina. Hún er staðsett í úthverfi Toulon sem heitir Hýeres. Þetta orð er borðið fram eins og ÍHA en samt ekki eins og íha. Það verður allavega einhver tími í það að geti sagt þetta orð rétt.;) Dagurinn í dag eyddum við Birna á ströndinni. Ótrúlega næs strönd, ekki nema 20 sek. Í burtu frá íbúðinni okkar.

Konan sem sér um alþjóðamál skólans er ótrúlega mikið treg og illa skipulögð. Hún lét skiptinema mömmu okkar ekki vita að við værum að koma fyrr en 2 dögum áður og við vissum ekki að hún ætlaði að ná í okkur á flugvellinn eins og hun gerði svo reyndar. Svo kom upp úr dúrnum að við þurfum að vera með fæðingarvottorð, passamyndir og einhvern heillings pappír en hún lét okkur ekki fá upplýsingar um það fyrr en daginn sem við komum. Íbúðina sem við erum í núna fundum við að öðrum degi. Vorum sett á eitthvað Bandarískt mótel og vorum þar í 2 nætur. Ef við hefðum ekki samþykkt þessa krúttlegu íbúð hefði okkur kannski verið splittað upp og sett inn á frönsk heimili sem við vorum ekki alveg að fíla....

En jæja við erum ekki með netsamband þannig við verðum annaðhvort að vera á flugvellinum eða á mcdonalds til þess að komast á netið. Erum að vinna í því að fá okkur net.

En það er allt gott að frétta og ég ætla að reyna að setja myndir inn á facebookið

Kv. Hanna

Hanna Rós Jónasdóttir
4 athugasemdir